Lifrarskaði tengdur notkun á Herbalife
Open accessThe DOI matches its Crossref record; 1 of the 1 references it cites were found in a registry or an index.
Abstract
Tilgangur: Mörg náttúruefni eru þekkt að því að geta valdið lifrarskaða.Nýleg íslensk könnun á aukaverkunum náttúruefna sýndi að lifrarskaði var oftast tengdur notkun Herbalife.Aðferðir: Lýst er fimm tilfellum af eitrunarlifrarbólgu í tengslum við notkun á ýmsum Herbalifevörum á Íslandi á árunum 1999 til 2008.Orsakatengsl voru metin með skilmerkjum WHO-UMC en einnig með RUCAM aðferðinni.Niðurstöður: Af fimm sjúklingum voru fjórar konur og einn karl.Miðgildi aldurs var 46 ár (spönn 29-78 ár).Lengd Herbalifenotkunar var á bilinu 1-7 mánuðir.Fjórir sjúklinganna voru með klíníska mynd lifrarfrumuskaða en einn með gallstíflulifrarskaða.Miðgildi fyrir eftirfarandi voru: bílirúbín 190 mmol/L (spönn: 26-311; eðlilegt <20 mmol/L), ALP 407 U/L (spönn: 149-712; eðl.35-105 U/L) og ALT 2487 U/L (spönn: 456-2637; eðl.70 og 45 U/L fyrir karla og konur).Lifrarástunga var gerð í tveimur sjúklinganna og samrýmdust vefjabreytingar eitrunarlifrarbólgu.Aðrar orsakir lifrarbólgu voru útilokaðar með viðeigandi mótefnaprófum og ómskoðun.Orsakatengsl voru samkvæmt RUCAM-aðferðinni líkleg í þremur og möguleg í tveimur en samkvæmt skilmerkjum WHO örugg í einu tilfelli, líkleg í tveimur og möguleg í tveimur.Ályktanir: Telja verður líklegt að notkun á Herbalifevörum tengist eitrunarlifrarbólgu.Eitrunarlifrarbólga af völdum náttúruefna er mikilvæg mismunagreining hjá sjúklingum með lifrarskaða.inngangur Eitt algengasta alvarlega vandamálið við lyfjanotkun er eitrunarlifrarbólga (toxic hepatitis) og á undanförnum áratugum hafa allmörg lyf horfið af sjónarsviðinu vegna þessa vandamáls.Mörg önnur lyf eru notuð með varúð vegna aukaverkana á lifur.Mörg þeirra lyfja sem eru á markaði eru fengin úr náttúrunni og sum þeirra geta valdið eitrunarlifrarbólgu.Telja verður að læknar séu almennt vel meðvitaðir um þessi vandamál.Orðið náttúruefni er hér notað um öll efni úr náttúrunni sem ekki eru lyf (náttúrulyf, náttúruvörur, fæðubótarefni) og ætluð eru til að bæta heilsufar eða útlit.Notkun slíkra efna hefur farið vaxandi á undanförnum árum víða um heim og á það sér örugglega margar skýringar.Ein ástæðan er talin vera trú margra á því að efni úr náttúrunni séu laus við aukaverkanir og virðist sú skoðun lífseig þrátt fyrir vísindalega vitneskju um hið gagnstæða.1 Eitruð efni eru mjög algeng í náttúrunni, meðal annars í jurtum.Talið er að þessi efni þjóni ákveðnum tilgangi við að verja jurtina (lífveruna) fyrir utanaðkomandi árásum, til dæmis skordýra og grasbíta.Efnin verja jurtina á mismunandi hátt, þau geta meðal annars verið bragðsterk eða eitruð.Sterkt bragð fælir frá grasbíta og jafnvel önnur dýr og eitruð efni fæla líka frá með því móti að dýrin læra af reynslunni að viðkomandi jurt er eitruð.Eiturverkanir náttúruefna eru mjög margvíslegar en algengar eru eiturverkanir á meltingarfæri, nýru, húð og lifur.Efni sem eru eitruð fyrir lifrina eru algeng í náttúrunni.2,3 Lifrarvandamál við notkun náttúruefna í fæðubótarefnum eru vel þekkt en ekki er vitað hve stórt þetta vandamál er.Eitruð náttúruefni geta valdið margvíslegum lifrarskaða svo sem bráðri eða langvinnri lifrarbólgu, gallstíflu, æðaskemmdum og jafnvel lifrarbilun og skorpulifur.Mikill fjöldi jurta inniheldur efni sem geta valdið eitrunarlifrarbólgu og má þar nefna sem dæmi Kava, Ma-huang (inniheldur efedrín), Aloe vera til inntöku 4 og grænt te (Camellia sinensis).[5][6][7] Af íslenskum jurtum má nefna krossfífil (Senecio vulgaris) og hóffífil (Tussilago farfara) sem báðir innihalda eitraða pýrróla (pyrrólizidín plöntubasa).3,8,9 Veturinn 2002-03 var gerð könnun meðal íslenskra lækna á aukaverkunum náttúruefna og voru niðurstöðurnar birtar í Læknablaðinu.10 Í þessari rannsókn skáru vörur frá Herbalife sig úr varðandi lifrarvandamál.Flestar tilkynningar bárust um Herbalife eða alls 78 og voru 12 þeirra um lifrarvandamál og flokkuðust þau öll sem alvarleg (sjúkrahúsvist).
Overview
The claims and statistics of this paper haven’t been checked yet.
Free: it reads the open-access text and checks the first 5 claims that cite a source we can check. Create a free account to check every claim.
Integrity signals
Registry
Cites
Statistics
Verification
Claims the paper makes
The claims and statistics of this paper haven’t been checked yet.
Free: it reads the open-access text and checks the first 5 claims that cite a source we can check. Create a free account to check every claim.
Self-check
Percentages, sums and reported differences re-computed from the paper’s own numbers.
The self-check needs the paper’s full text.
Citations
Cites
Danan, G., & Benichou, C. (1993) · Journal of Clinical Epidemiology · doi:10.1016/0895-4356(93)90101-6 · Cited by 1,481
Cited by
RUCAM in Drug and Herb Induced Liver Injury: The Update
Danan, G., & Teschke, R. (2015) · International Journal of Molecular Sciences · doi:10.3390/ijms17010014 · Cited by 729
Hepatotoxicity by Dietary Supplements: A Tabular Listing and Clinical Characteristics
García-Cortés, M., Robles-Díaz, M., Ortega-Alonso, A., Medina-Caliz, I., & Andrade, R. (2016) · International Journal of Molecular Sciences · doi:10.3390/ijms17040537 · Cited by 179
“Up to date, there are 11 published reports of liver injury (with a total of 57 cases) after the intake of some of the different products offered by Herbalife, 12 cases from Switzerland [78,79], 12 from Israel [80], 20 from Spain [81–83], 1 from Argentina [84], 5 from Iceland [85], 5 from US [10,86] and two from Venezu…”
BackgroundTeschke, R., & Eickhoff, A. (2015) · Frontiers in Pharmacology · doi:10.3389/fphar.2015.00072 · Cited by 132
Herbal hepatotoxicity: Clinical characteristics and listing compilation
Frenzel, C., & Teschke, R. (2016) · International Journal of Molecular Sciences · doi:10.3390/ijms17050588 · Cited by 122
Brown, A. C. (2017) · Food and Chemical Toxicology · doi:10.1016/j.fct.2016.07.001 · Cited by 77
Metadata
- Authors
- Jóhannsson, M., Jóhannsson, M., Ormarsdóttir, S., & Ólafsson, S.
- Venue
- Læknablaðið
- Published
- 2010-03-01
- Volume
- 2010
- Issue
- 03
- Pages
- 167-172
- ISSN
- 0023-7213 (ISSN-L)
- 1670-4959
- OpenAlex
- W2269608311
- Cited by
- 28
- References
- 1
- FWCI
- 10.23
- Type
- journal article
- Language
- is
- Open access
- diamond
About these checks
Registry, retraction, Cites and statistics results are computed, not judged, with one exception: a printed reference that no index lists is read once by a model before it counts as a citation error. Claims are extracted by a model and kept only when their quote appears verbatim in the text; each cited source is then checked, with a model’s help, for whether it says what the claim relies on. Those verdicts can be wrong — read the claim’s quote and the cited source before relying on one.
Statistics and arithmetic are recomputed, not judged.
Confidence bands are shown only for fields calibrated on our annotated test set. None is calibrated yet, so no band is shown.
What counts as a claim ›How we measure confidence ›How we check this ›
Are you an author, or do you see a problem with this page? Request a review
Data sources
Bibliographic data: Semantic Scholar, OpenAlex, Crossref.
Contains information from the Semantic Scholar Academic Graph Datasets, made available under the ODC Attribution License (ODC-BY 1.0).
Semantic Scholar’s data is described in: Kinney, R., et al. (2023). The Semantic Scholar Open Data Platform. arXiv:2301.10140.